Það er orðið alveg ótrúlega algengt að sjá skrifað "Er að leita af þessu eða hinu".
Maður leitar að hlutum!
Ekkert illa meint, bara smá fróðleikskorn sem vonandi verður til þess að geðheilsu minni hrakar ekki mikið meira. Ég bara má ekki við því.
PS: Svo er annað mál að maður getur "leitað af sér allan grun um eitthvað" en það er allt önnur merking...




