x5power wrote:
sópa hesthúsið og taka myndir!
Ég hafði aldrei neinar efasemdir um að þetta myndi ganga þó þú hafir haft þær. Kaupin á dráttartauginni voru bara til að hvetja þig áfram.
Anyway, fyrir þá sem vilja fylgjast með þá lá vandamálið basically í
að tímahljólið (eða hvað sem maður kallar þetta) framan á m52 er ekki það sama og á m50. Verkfræðingunum hjá bmw fannst það greinilega sniðugt að færa til gróvina sem skynjarinn nemur (held það sé crankshaft skynjarinn) og þess vegna neistaði vélin alltaf á röngum tíma. Þegar það var skipt um þetta hjól þá rauk bíllinn í gang í fyrstu tilraun.
Ég á nú eftir að tengja betur m50b25 soggreinina þar sem bíllinn er að draga falskt loft, en greininni var bara skellt á hálftengdri þar til bíllinn kæmist í gang. Það er nú bara smá föndur að splæsa saman hosum, en ég hafði keypt adjustment kit á eBay.
Nýja læsta drifið er svo líka komið í þannig að það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið gott kvöld í gær.
Það er nú búið að sanna að m52b28 úr e39 má nota í e36 með rafkerfi af m50b25, það þarf bara að skipta um helling af hlutum (þó ekki pönnuna). Ég tel mig nú vera kominn á Hybrid.
Gamla vélin er ekki svipur af sjón eftir þetta ferðalag, hún lítur út eins og bíll sem hefur verið skilin eftir í breiðholtinu yfir nótt. Það er nánast ekkert eftir á henni.
Næst á dagskrá verður svo að fá vanosið í gang með nýju rafkerfi og nýrri tölvu sem verður svo vonandi tjúnnuð af GST í sumar.
Myndir fylgja fljótlega.
Það er ekki einu sinni það sama á öllum M50B25 ... gættu að því
saemi og Skúra-Bjarki stóðu í hellings veseni einmitt út af svona löguðu,, en settu kollinn í bleyti og redduðu þessu á sama veg og þú