En svo ég segi nú frá því hvað það er sem heldur mér á kraftinum þá eru það nokkur atriði. Það eru sumir meðlimir sem hafa verið hérna mjög lengi sem mér þykir gaman að lesa pósta frá:
Bebecar. Alltaf gaman að lesa hans röksemdir og greinar hvort sem það snýr að bílum eða bara off-topic umræðum.
Fart. Hans sjónarhorn einmitt á margar off-topic umræður finnst mér mjög gaman að lesa.
Saemi. Oft spjallað við hann og keypt af honum bíl og svo líkar mér rosalega vel við hans nálganir á málefnin hérna.
Alpina. Hef alveg fáránlega gaman af hrokanum og fullyrðingagleðinni hans. Hans ,,,,,skrautlega,,,,, framsetning er alveg yndisleg. Krafturinn væri TÖLUVERT litlausari ef hans nyti ekki við.
Svo eru svo margir aðrir spjallverjar sem maður er farinn að kynnast að manni finnst við skrif þeirra hérna. Eins og t.d. GSTuning, Svezel, iar, MRHung, Arnibjorn og margir fleiri sem ég tek meira mark á en mörgum öðrum á spjallinu.
Ég hef nú verið í lægð síðustu tvö ár. Fór í nám og hef ekki beint getað verið að sinna bmw dellunni eins og mig langar. En núna er ég mikið að koma til baka og líklega að fara að skipta um bíl og taka meiri þátt. Það sem ég er að skoða mest hérna á spjallinu eru "Til Sölu BMW" dálkurinn og "Off Topic" þræðirnir, og þá SÉRSTAKLEGA "ULTIMATE myndaþráðurinn NWS". Hann er einn skemmtilegasti samtíningur af fyndnu efni sem ég veit um á internetinu.
Svo getur dramað og fýlan oft verið skemmtilegt afþreyingarefni líka
En eins og ég segi þá reikna ég með að vera að fara að sinna þessu áhugamáli betur á næstunni og hef verið að koma meira til baka sem er mjög skemmtilegt. Og þá er ennþá skemmtilegra að kíkja oft á kraftinn og sjá hvað er að gerast.