Ef að þú hefur prófað allt hér að ofan án árangurs gætiru prófað að kíkja á búnaðinn 12-15 á þessari mynd. nr 12 er lítill einstefnuloki og ef hann klikkar þá á vélin erfitt með lausagang og er með almenn leiðindi, þar sem þessi búnaður tengist sveifarhúsönduninni er þessi búnaður oft subbulegur og mjög gott að taka hann upp og hreinsa.
