Það bendir allt á að heddið/heddpakkning sé að nálgast síðustu kílómetrana og það kostar auðvitað soldin pening að láta laga þetta. Og ég segi bara tilhvers þegar ég hef fundið nokkur góð eintök af M52B25/28 og M54B25 fyrir ca. 4000-5000 DKK.
M52B25 - Mestu leiti plug'n play ? er ekki mikilvægast að fá tölvuna með, EWS boksið og lykil og að loomið er fyrir auto ? en hvað með pústið ? er nóg að skipta um fremri hlutann ?
M52B28 - sama og B25 ? en ræður drifið,öxlar og drifskaptið frá B20 við aflið ?
M54B25 - fann nefnilega eina góða sem er ekki ekin nema 93þús km. Og er það ekki bara loomið sem þarf að vera fyrir auto? þar sem ég er nokkuð viss um að það er sama í m52 og m54 ? En ef það er fyrir manuel .. er ekki hægt að kaupa bara mótorloom sem gengur að auto? Auðvitað tölvu og ews partana... en pústkerfið ? er nóg að skipta um fremri partinn og rest (hvarfi og út í enda) ?
langaði bara að heyra í ykkur fyrst áður en ég tek ákvörðun varðandi þetta mál
Nenni bara ekki B20 aftur þótt að það sé lang þæginlegast .. ef maður ætlar sér þetta, þá er stærra alltaf betra
Með Kveðju
Helgi


