Rolls Royce Phantom eða Maybach 57

Hér skal spjalla um BMW.

Postby benzboy » Thu 19. Feb 2004 22:22

bebecar wrote:Reyndar er Maybach betur búin í svona græjum - en þetta eru jafn dýrir bílar og peningarnir á rollsinu fóru í hönnun á bílnum sjálfum en ekki í einhverjar græjur. T.d. er bara einn takki sem stillir hitastigið aftur í!

Maybach er í raun mikið breyttur S Benz en Rollsinn er nýr frá grunni og á lítið sameiginlegt við sjöuna - ég held að rolls menn hafi sett peninga þar sem þeir skipta mestu máli í hönnun á bílnum sjálfum í stað þess að nota ódýrari bíl sem grunn og fylla hann af græjum.

Rolls aðferðin finnst mér mun meira spennandi.


Maybach fyrir mig og það er EKKI vegna þess að ég sjái ekkert nema Benz, finnst bara Rollsinn of klossaður. Og annað, sem er heldur EKKI vegna þess að ég sjái ekkert nema (s) Benz, er ekki bara skýringin á því að Maybachinn er byggður á s Benz einfaldlega sú að það var búið að eyða miklu í góða hönnun - af hverju að finna þetta allt upp aftur?
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)
User avatar
benzboy
Getawaybílstjóri
 
Posts: 834
Joined: Sat 03. May 2003 18:27

Postby iar » Thu 19. Feb 2004 22:52

bebecar wrote:Eina sem mér finnst virkilega kúl í Maybach er glerþakið, það getur verið gegnsætt, matt, hálfmatt eða lýst upp bílinn og öllu stýrt með einum takka.


Það er væntanlega þetta hér (How Stuff Works). Alveg uber svalt!
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby bebecar » Thu 19. Feb 2004 22:56

Þetta er nú það helsta sem menn telja bílnum til foráttu að hann sé hreinlega ekki það mikið betri en S benz.

Og auðvitað hlýtur það að fara í taugarnar á mönnum þegar þú kaupir fimm sinnum dýrari bíl en dýrasti S Benzinn er að það sé sama mælaborð í þeim - það er bara púkó.

En bíllinn er góður og sögur segja að það hafi sést til svona bíla á 300 kílómetra hraða á átóbönum, ekki slæmt af tæplega þriggja tonna og rúmlega 6 metra löngum bíl :lol:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby íbbi_ » Fri 20. Feb 2004 23:09

hann er nú ekki með alveg sama mælaborðið og S bíllin þrátt fyrir að það sé svipur með þeim, annars játa ég það að þessi bíll mætti nú vera fallegri, gæti eflaust orðið ágætur með smá breytingum, en bara innrétingin heillar mgi svo mikið!!!!!!! og náttla 900nm

rollsin fynnst mér flpttur að utan,. ljótur að innan (þ.e.a.s ljótur meðað við sona bíl,)
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 44 guests