gstuning wrote:
slapi wrote:
gstuning wrote:
Segir sá sem hefur enga raunverulega hugmynd um hvernig F1 virkar.
McLaren er með eitt stærsta tækniver af öllum liðunum.
Hefurðu verið svona leiðinlegur frá fæðingu eða er þetta uppeldið?
Ég veit bara meira um F1 enn þú, og því finnst mér comment þitt frekar kjánalegt þar sem að þú varpar fram
einhverjum skoðunum sem staðreyndum um McLaren án þess að í raun vita hvað þú ert að tala um.
Enn þetta er allt í lagi, fólk fer oft í fílu þegar það hefur rangt fyrir sér og einhver leiðréttir það.
Kæri gstuning.
Maður trúir vart sínum augum við mörg skrif þín. Ein setning hefur oft sést hérna og það er " Ekki rengja GStuning" og ég er að fatta núna afhverju , það er einfaldlega enginn sem nennir að standa í því. Hrokinn og yfirgangurinn er svo mikill að þetta verður hálf yfirþyrmandi.
Ég sé það alveg og ber mikla virðingu fyrir því að þú virðist ofsalega klár og allt það en mannlegu samskiptin hafa eitthvað farið forgörðum.
Það sem ég er að vitna í er =
http://www.telegraph.co.uk/sport/motors ... kaway.html ,,,, sem frekar stórt hneyksli , kannski út af því að það komst upp um það en hvað veit ég. Þú mátt alveg vita meira um formúluna en ég.
Þó þú vitir meira um F1 er frekar óparktískt upp á samskipti að byrja á því að drulla niður þann sem veit minna og annað þá á maður alltaf að virða skoðanir annara þó þér þykir þær vera rangar. Ég hef reynt að temja mér að vera með eitthvað frekar í áttina að vera með upplýsingamiðlun til fólks í staðinn fyrir predikun , reynst mér mjög vel.
En að aðalatriðinu.
Þú hefur ekki en svarað spurningunni.
Kær kveðja
Davíð Már Steinarsson