by bebecar » Thu 19. Feb 2004 22:05
Ég held hann sé bara lengdur um hálfan meter (57 týpan). Hann notar sömu fjöðrun, mælaborð, "switchgear" og margt fleira og fær einmitt gagnrýni fyrir það að menn skilja ekki hvernig hann getur kostað fimm sinnum meira en S Benz.
Í rollsinum er allt sér hannað.
Eina sem mér finnst virkilega kúl í Maybach er glerþakið, það getur verið gegnsætt, matt, hálfmatt eða lýst upp bílinn og öllu stýrt með einum takka. Hitt er eru bara græjur og það er nóg af þeim í helling af öðrum bílum, sérstaklega í S Benz. Þetta er vissulega sitthvor nálgunin á sama verkefninu.
Mér finnst Rollsinn hafa mikið meiri klassa en því er ekki að neita að græjurnar eru yfirgengilegar í Maybach.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road