Ég er að spögulera í BMW 850

Hér skal spjalla um BMW.

Ég er að spögulera í BMW 850

Postby Aron540 » Tue 16. Feb 2010 15:14

mig langar að prófa að eiga svona bíl núna yfir sumar tímann, en er hinsvegar alveg skíthræddur um að ef eitthvað fer í bílnum þá eigi það eftir að kosta eitt nýra og einn handlegg... og kannski þurfi að bíða eftir öllu varla hlutum lengi :roll:

en annar var ég búinn að heira að þessar V12 vélar hjá BMW væru ekkert til að hrópa húrra fyrir, er einhver rökstuðningur bakvið það ?

með von um góð svör......



:popcorn:
BMW e39 M5
BMW e39 540
KTM 400 exc
Aron540
Kassabílstjóri
 
Posts: 120
Joined: Mon 27. Apr 2009 10:09

Re: Ég er að spögulera í BMW 850

Postby JOGA » Tue 16. Feb 2010 15:52

Held að svona bíll sé kannski ekki rétti bíllinn til að flippa á eitt sumar. Það er ekki ódýrt í þetta dótið. Þá eru margir BMW auðveldari í meðförum. En svosem í lagi ef bíllinn sem er keyptur er góður og ekki kominn á tíma með margt. Þá væri það bara að fylgjast vel með öllu og laga það sem út af fer strax.

V12 vélin er fín. Þetta er solid vél hef ég heyrt (með góðu viðhaldi) og skilar sínum 300 hestum. Held að mest sé verið að setja út á að hún skili ekki miklu umfram v8 og það sé oft ekki viðhalds og bensíneyðslunnar virði að hafa þessa auka 4cyl. En fyrir okkur hér á skerinu þar sem 840ci er svo sem ekki boði hvort sem er sé ég ekki hvað það kemur málinu við...

Hef ekki persónulega reynslu af þessum bílum btw.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Re: Ég er að spögulera í BMW 850

Postby akajoi » Wed 17. Feb 2010 12:47

ég er buin að vera með ein 850i í hálvt ár.ekkert serstægt vandamál.það eru til sumir partar hér heima.var að fá hjólalegu á mánudag.
akajoi
Kassabílstjóri
 
Posts: 106
Joined: Sun 10. Aug 2008 21:49
Location: rvk

Re: Ég er að spögulera í BMW 850

Postby Dr. E31 » Wed 17. Feb 2010 16:25

Eins og JOGA segir þá er þetta ekki bíll sem þú kaupir til að "prófa" að eiga, þetta er svona "for the long run" bíll.
Rekstur: Ekki mikill, aðalega bansín
Varahlutir: Dýrir
Ef bíllinn er ekki tip top standi þá má búast við miklum rekstrarkostnaði.
User avatar
Dr. E31
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1898
Joined: Wed 11. Sep 2002 01:19
Location: Reykjavík

Re: Ég er að spögulera í BMW 850

Postby -Hjalti- » Thu 18. Feb 2010 09:40

JOGA wrote:V12 vélin er fín. Þetta er solid vél hef ég heyrt (með góðu viðhaldi) og skilar sínum 300 hestum. Held að mest sé verið að setja út á að hún skili ekki miklu umfram v8 og það sé oft ekki viðhalds og bensíneyðslunnar virði að hafa þessa auka 4cyl. .


Ég veit ekki hvaða svaka bensín v12 vélin á að vera að eyða framm yfir v8 vélina.
Ég er reyndar með nýrri v12 (M73TUB54) og er hún í 17.1 lítra á hundraði í meðal og þar af meirihlutinn innanbæjar. Ég var mikið á 540 og 740 í fyrra og þeir bílar voru í mjög svipuðum tölum. Það er kanski ekki neinn svakalegur snerpu munur á v8 og v12 en mikið djöfull hefur v12 vélin mikið minna fyrir hlutunum og er með svo mikið meira smoth power band.
00' E38 750i
-Hjalti-
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1332
Joined: Wed 09. May 2007 20:41

Re: Ég er að spögulera í BMW 850

Postby akajoi » Sun 21. Feb 2010 18:49

(vitlusú þráður)
akajoi
Kassabílstjóri
 
Posts: 106
Joined: Sun 10. Aug 2008 21:49
Location: rvk


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests