Olíublaut kerti í e39

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Olíublaut kerti í e39

Postby Ívarbj » Sat 13. Feb 2010 16:33

Sælir,

Ég var að kíkja á kertin hjá mér og voru 4 af þeim olíublaut og það alveg frekar mikið.

Ef ég stend fyrir framan húddið þá eru 2 vinstramegin nær mér þurr og sama á við um hægrameginn en hin 2 fjær báðum meginn eru útötuð í olíu, ég athugaði hvort þau væru hert og voru þau öll alveg pikkföst og auðvitað þurrkaði ég þau öll í leiðnni.

Hefur einhver hugmynd um hvað getur verið að, ný kerti?

Þess má geta að fyrir viku síðan komu upp skriðvarnarljósið, abs ljósið og spólvarnarljósið í mælaborðinu (líklegast skynjari).
En eftir þetta þá hefur bíllinn verið að koka svolítið (stundum) þegar ég gef honum inn (yfir 3000 snúninga)
Stundum kokar hann í 2 gír en alltaf í 3 gír þegar gefið er inn en ekkert í 1, 4 og 5 gír.

Svo spurningin er sú, ætli þetta kok tengis ABS dótinu og því (þar sem þetta byrjaði eftir að ljósin poppuðu upp)
eða getur þetta verið eitthvað annað, kanski kertin?

Kv. Ívar
BMW E39 535i 1999
Ívarbj
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 295
Joined: Thu 29. May 2008 23:33

Re: Olíublaut kerti í e39

Postby birkire » Sat 13. Feb 2010 16:41

Myndi skipta um ventlalokspakkningar fyrst kertin eru öll í olíu, eina sem kemur til greina
vti
birkire
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2518
Joined: Fri 30. Nov 2007 12:46
Location: sniffa lím

Re: Olíublaut kerti í e39

Postby Ívarbj » Sat 13. Feb 2010 16:50

birkire wrote:Myndi skipta um ventlalokspakkningar fyrst kertin eru öll í olíu, eina sem kemur til greina


Takk fyrir þessa ráðleggingu,

Er ekki þá best bara að skipta um ventlalokspakninguna, taka síðann upp kertin og jafnvel skipta um þau í leiðinni og þurka öll hólfin þar sem kertin fara ofaní og losna við alla þessa olíu sem kom frá þeim.

Kv. Ívar
BMW E39 535i 1999
Ívarbj
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 295
Joined: Thu 29. May 2008 23:33


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests