Jæja, nú fer að styttast í að ég skipti um vélina í 533iA.
Vélin sem er ofan í núna er úr E28 528iA '82, M30B28 og er með 4HP22 sjálfsskiptingu á.
Upprunalega vélin úr bílnum, M30B32, fylgdi með bílnum og er hún með áfastri skiptingu sem er 3HP22.
Ég veit hver munurinn er á skiptingunum, 3HP er þriggja þrepa en 4HP er fjögurra þrepa.
Spurningin mín er sú, hvort er gáfulegra að setja 3.2 lítra vélina ofan í með 3HP22 eins og bíllinn kom upprunalega, eða setja 4HP22 skiptinguna á?
Er ekki "betra" að vera með 4 þrep frekar en 3 þrep?

