Er að skipuleggja það að skipta út sjálfskiptingunni Touring fyrir beinskipt.
Er svolítið óviss með eitt og vantar ráðleggingar.
Get fengið ZF kassa hér heima (Orginal í 328i og M3) en hann kostar líka ágætan aur.
Get líka fengið 325i/525i kassa fyrir eitthvað minni pening en í báðum tilvikum vantar mig samt drifskapt og tilheyrandi.
Spurningin er: Er mikill munur á þessum kössum í akstri?
Skilst að þetta séu munur á drifhlutföllum í kössunum. Munar ekki miklu finnst manni:
Getrag (92-95) ZF (96+)
1 4.23 4.20
2 2.52 2.49
3 1.66 1.67
4 1.22 1.24
5 1.00 1.00
Haldið þið að það sé þess virði að eyða ca. 60-70þús meira í ZF kassann?

