
Ég vil náttúrlega losna við þessu ljós ekki seinna en strax en nú er spurning hvað maður á að gera í staðinn. Ég hafði hugsað mér að kaupa bara ný OEM ljós en þau kosta orðið alveg fáránlega mikið (100++) svo í stöðunni er að kaupa Depo OEM look ljós (með projectors) fyrir c.a. 35þús kall, Depo angel eyes bla bla með Xenon á 60þús eða finna þetta notað á ~20þús kall.
Ég myndi alltaf fá mér xenon svo OEM look yrði alltaf tæpur 50þús kall en angel eyes (með svörtum botnum) 10þús í viðbót.
Hvernig er reynslan af þessum Depo ljósum, sérstaklega í seinni tíð, því ég veit að þetta var ekki besta dótið fyrir nokkrum árum?
Allar hugmyndir vel þegnar



