Einhverjir hér ættu að kannast við bílinn, þá aðallega útaf því að hann Einar (einarsss) átti hann á undan mér. Mér var sagt að þetta væri einn af tveimur 4-ja dyra M-Tech II e30 á landinu. Það var alltaf planið að gera bílinn enn flottari og betri en hann var þegar ég keypti hann en ég hef aldrei fundið tíma til þess svo mér mundi eigilega líða betur ef þessi bíll mundi lenda í höndunum á einhverjum snjöllum BMW-nörda þar sem þetta er alveg suddalega flottur bíll.
Eins og ég sagði, þá er ég varla búinn að breyta bílnum neitt síðan ég keypti hann. Það sem ég hef gert er:
-Setti hann aftur á BBS RS-001(7x15 felgur)
-Rúllaði bæði frambretting og sprautaði þau
Maður getur líka ekki átt svona bíl í tæp 3 ár án þess að eitthvað sé að honum. Helstu kvillar bílsins eru:
-Rúðuþurkur fara stundum sjálfkrafa af stað, veit ekki orsökin fyrir því. Þetta var ekki í lagi þegar ég keypti bílinn. Þar sem ég hef enga reynslu af bílviðgerðum og fann aldrei tíma til að byrja á því að kenna sjálfum mér þá er þetta vandamál enn til staðar. Svo tókst mér að brjóta rúðuþruku sveifina, en það ætti að vera smámál að gera við það.
-Það er gölluð topplúga í bílnum. Þetta var líka að þegar ég keypti bílinn, en ég fékk nýja toppúlúgu með sem ég sprautaði svo en á ennþá eftir að setja hana í. Hún fylgir auðvitað með bílnum og þéttilistarnir eru líka með.
-Það brakar í hægri framdyrunum á bílnum, virðist vera sem einhverjir boltar hafi losnað en virðist ekki vera mikið mál að gera við. Ef það reynist eitthvað meira vesen en ég held að það sé, þá lækka ég verðið í samræmi við það.
-Svo var brotist inn í hann og tekið skjáinn(Alpine CVA-1000) sem var framan í honum, það var ekki tekið neitt af öllum hinum græjunum í bílnum, heilinn sem að tengist við skjáinn er ennþá í bílnum. Það má finna eins skjá á Ebay og það eru örugglega til fleiri skjáir/útvörp sem hægt er að tengja við heilann sem er í bílnum. En ef þið skilduð rekast á einhvern að selja Alpine CVA-1000 þá er það að öllum líkindum mitt tæki þar sem ég efast um að þessir skjáir séu mjög algengir hér.
Ég fékk leyfi frá Einari (einarsss) til að nota gamla þráðinni um bílinn, þið getið skoðað hann fyrir nánari upplýsingar um bílinn þar sem hann er hér um bil óbreyttur og svo er hann einmitt á BBS RS 001 á myndunum á fystu blaðsíðu þráðarins.
http://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=17830 Ég hef fulla trú á því að þetta geti orðið einn af flottustu e30 á landinu ef bíllinn lendir í góðum höndum og ég vona að hann geri það. Bíllinn er ekinn 196 þús. km.
Ég set bílinn á 950 þús. Ef þið viljið senda mér tilboð þá skuluð þið senda mér það í PM. Einu skiptin sem ég er til í er ódýrari bíll og hentugari skólabíll, þ.e. bíll sem eyðir litlu, ágætlega rúmgóður og helst fjögra dyra. Vill samt helst fá pening fyrir hann svo ef einhver býðst til að staðgreiða þá væri alveg hægt að semja. Ef það eru einhverjar spurningar um bílinn sjálfan er alveg sjálfsagt að spyrja í þræðinum eða með PM, en vinsamlegast sendið allar spurningar um verð og öll tilboð með PM.
MYNDIR KOMNAR:
http://flodeskum.imgur.com/e30Bíllinn er dáltið skítugur eins og er
