Eins og ég skil útskýringuna frá Svenna Tiger þá á gaurinn að hafa sett viftureimina ÖFUGT í þegar hún losnaði og það hafi verið að valda því að bíllinn hafi hitnað.
Síðan heldur gaurinn bara áfram að spyrna á fullu við Tiger og bíllinn hitnar og hitnar. Hann stoppar og lætur bílinn kólna, sullar vatni á kassan og fer svo aftur út að spyrna á fullu.
Síðan eru þeir að keyra hlið við hlið eða Tiger á eftir honum þegar kemur bara reykjarmökkssprengja útúr RV og tiger reynir að keyra upp að gaurnum til að segja honum að drullast til að hætta keyra bílinn. Þá hafi gaurinn bara staðið bílinn og brunað fram úr Tiger. Síðan hafi hann bara keyrt bílinn þangað til að hann dó.... og það var víst alveg ógeðsleg lykt af þessu öllu.
Þannig að gaurinn veit semsagt alveg 100% uppá sig sökina og veit alveg hvað gerðist. Hann hefur bara farið í kerfi og núna að reyna koma sínum skít yfir á mig!
Svenni Tiger og vinur hans urðu allavega vitni af þessu öllu saman og Svenni er tilbúinn að bakka mig upp er þess þarf og fyrir það er ég alveg mjög þakklátur!!
