Þessi bíll var í minni eigu sirka 2005-2006/7
Hann var algjörlega óbreyttur þegar ég eignast hann. Það sem ég gerði við hann er eftirfarandi :
Samlitun, Opið púst, Lækkun, Kicker græjupakki, Sérsmíðað fiberglass bassabox, 7"monitor & PS2, Augabrúnir og vindskeiðar að framan. Nýtt stýri og gírhnúi.
Þessi bíll reyndist mér rosa vel og var þrælskemmtilegur á allan hátt. Svo var ég farinn að vilja meira afl og skipti í E36 M3.
Hér er mynd af honum eins og hann var þegar ég átti hann.

Svo árið 2006 minnir mig lenti hann í smá átökum og endaði svona.

Þetta var fljótt lagað og reyndist vera minna en virtist í fyrstu
Ég læt fylgja með eina mynd af skottinu eins og það var þegar hann fór frá mér
2x12" Kicker subs, 1.5f capacitor, 1x1250w Kx mono magnari

Gangi þér vel með bílinn og spurðu bara ef það er eitthvað





















