Ég held að menn séu nú bara að gleyma því að það er spilling víðast hvar og hún getur vel verið meiri í kringum okkur þó okkur finnist hún mikil hér á landi.
Spilling er að miklu leiti kerfisbundin og ástæða þess að Ísland er iðulega talið lítið spillt land er t.d. vegna þess að hlutir eins og fjárkúgun, mútur, sérhagsmunagæsla (króníismi og nepótismi) er bæði útbreitt og algengt í kringum okkur. Hugsið ykkur aðeins um, skipulögð glæpasamtök fyrirfinnast nánast allsstaðar í nágrannalöndunum og flest hér að ofan tengist þeim og þau teygja sig inn í atvinnulíf og pólitík að auki. Þá eru króníismi og nepótismi eftir og tengist meira pólitík og líklega eru vandamálin hér svipuð. Þó þurfa menn ekki að leita langt til að sjá að því meiri sem hagsmunirnir eru því meiri eru líkurnar á alvöru skandölum. Mjólkurduft-skandalar, vopnabrask, geislavirkur úrgangur, misnotkun á risnu, Elf, Enron, Profumo, kredikortasvindl pólitíkusa (hvernig var með bresku þingmennina sem létu þingið borga fyrir garðvinnu og fleira?), njósnir, ólögleg urðun og svo framvegis.
Eftir að hafa búið í tæp 6 ár í DK þá sér maður að skandalar eru bara verulega algengir, bara á síðustu árum man ég eftir stórum skandölum með bæjarstjóra sem stakk undan stórfé, banka sem var settur á hausinn vegna svindls, ungan pólitíkus með nýnazista stæla í tívolí, annar sem að svaf hjá stelpu á ungliðaþingi, endalaust svindl með íbúðir og kreditkortanotkun, misnotkun á ríkisbifreiðum, bílstjórum (ekki physical sko!) og svo framvegis.
Glæpaklíkur eru að reyna að festa sig í sessi hér, en þær hafa ekki enn náð að smjúga inn í embættismannakerfi og fyrirtækin. Ef það tekst þá er full ástæða til þess að efast um að við eigum einhvern rétt á að vera ofarlega á lista. Svo er náttúrulega spurning hvernig þetta lítur út ef menn stinga mörgum skýrslum undir stól nú þegar rannsóknarniðurstöður fara að koma fram vegna bankahrunsins.
Ætli við séum ekki bara amatörar í spillingu eins og svo mörgu öðru
