Leki hjá olíuloki

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Leki hjá olíuloki

Postby Andri Fannar » Tue 05. Jan 2010 00:02

Sælir,
er í eilitlum vandræðum.

Er með 318i facelift 2002 e46 módel. N42B20 vélin.

Til að byrja með þá bendi ég á þetta sem gerðist síðsumars.
Í stuttu máli var það fyrsta og eina skiptið sem ég hef farið með bílinn í smurningu - þeir lokuðu tappanum og ég keyrði heim og það gaus upp reykur og olía hafði lekið meðfram tappanum niður með vélinni og á fremsta hluta pústsins. Þeir hreinsuðu og festu tappann á daginn eftir og ekkert vesen eftir það.

Svo í október gaf bíllinn mér þá meldingu að það vantaði olíu, sem var rétt þegar ég mældi með stikunni, ég bætti líter á hann og lokaði tappanum. Sama gerðist, olía lak með fram og reykur kom upp. Ég þreif margoft og lokaði og opnaði og þreif og allt, og að lokum hætti þetta að gerast eftir eina "lokunina" hjá mér á tappanum og bíllinn var í lagi.

Síðan í dag bætti ég olíu á hann(lak slatti í október og fékk aftur meldingu um litla olíu). Ég loka tappanum sómasamlega og fer að keyra og já, þá byrjar að rjúka og helvítis lyktin sem fylgir. Ég opna húddið og viti menn - olía lak meðfram tappanum!

Hvað á ég að gera í þessu? Ég skolaði vélina bara áðan og keyrði örstutta vegalengd en það voru strax smá litlar olíuslettur komnar þegar ég kom á leiðarenda.

Jæja, snillingar - orðið er laust :wink:
Image

>> BMW e46 318(2L) '02 - Í notkun <<
User avatar
Andri Fannar
Kassabílstjóri
 
Posts: 192
Joined: Thu 29. Jan 2009 14:31

Re: Leki hjá olíuloki

Postby ömmudriver » Tue 05. Jan 2010 02:23

Athugaðu með þéttihringinn á olíutappanum hvort að hann sé ekki óskemmdur og mjúkur en gúmmíið gæti verið búið að harðna enda rúmlega sjö ára gamalt, ef svo er þá skaltu bara renna við í B&L eða T.B. og fjárfesta í nýjum þéttihring og skipta um.

Ef það er ekki hringurinn skoðaðu þá pinnana tvo sem standa sitthvoru megin út úr olíutappanum(sem sjá um að "læsa" tappanum) og athugaðu hvort að þeir séu ekki lagi s.s. ekki bognir eða eitthvað eftir klaufaskap við að setja tappan á lokið.

Þetta er það sem að ég myndi byrja á að gera :)
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: Leki hjá olíuloki

Postby Einarsss » Tue 05. Jan 2010 08:02

kaupir bara nýjan tappa ;)
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Leki hjá olíuloki

Postby Andri Fannar » Tue 05. Jan 2010 12:01

Ég fór með hann á smurstöð í morgun og bað þá um að skoða tappann - honum sýndist hann vera í lagi en sneri þéttihringnum við í tappanum og skolaði vélina. Ég fór heim voðalega sáttur en um leið og ég renni inn í hlað þá kemur lyktin vonda og ég opna húddið og þá voru ferskar slettur sem höfðu lekið.

Þær leka alltaf sömu megin, þannig það skiptir ekki máli hvernig tappinn snýr. Alltaf niður hliðina.

Get ég keypt þennan tappa hjá TB? Fæ ég þá alveg nýtt unit, nýr þéttihringur og svona?
Er enginn staður á Akureyri sem ég ætti að geta fengið reddingu?
Image

>> BMW e46 318(2L) '02 - Í notkun <<
User avatar
Andri Fannar
Kassabílstjóri
 
Posts: 192
Joined: Thu 29. Jan 2009 14:31

Re: Leki hjá olíuloki

Postby siggir » Tue 05. Jan 2010 15:36

Kíttaðu bara meðfram lokinu :thup:
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

Re: Leki hjá olíuloki

Postby IngóJP » Tue 05. Jan 2010 18:12

Nýtt lok lagar þetta
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Re: Leki hjá olíuloki

Postby Andri Fannar » Tue 05. Jan 2010 21:04

Nýtt lok á leiðinni frá umboðinu - vonum það besta :roll:
Image

>> BMW e46 318(2L) '02 - Í notkun <<
User avatar
Andri Fannar
Kassabílstjóri
 
Posts: 192
Joined: Thu 29. Jan 2009 14:31

Re: Leki hjá olíuloki

Postby Dóri- » Fri 15. Jan 2010 12:39

er öndunin úr ventlalokinu nokkuð stífluð ?
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Re: Leki hjá olíuloki

Postby Andri Fannar » Fri 15. Jan 2010 12:48

Hvar og hvernig get ég athugað það?

Ég náði að laga þetta einhvernveginn með því að loka tappanum aftur, veit ekki hvernig, en ég er kominn með nýjan tappa frá B&L sem er með pínu plast aukalega hjá járnunum sem festa tappann, vonandi að hann virki. Ætla að láta hann næsta þegar bíllinn verður smurður.

Allavega er þetta ekki vandamál lengur, en mun koma ef ég opna tappann aftur. :thdown:
Image

>> BMW e46 318(2L) '02 - Í notkun <<
User avatar
Andri Fannar
Kassabílstjóri
 
Posts: 192
Joined: Thu 29. Jan 2009 14:31

Re: Leki hjá olíuloki

Postby Einarsss » Fri 15. Jan 2010 13:33

tekur ekkert sjénsinn .. skellir bara nýja tappanum á núna
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Leki hjá olíuloki

Postby Aron Andrew » Fri 15. Jan 2010 19:26

einarsss wrote:tekur ekkert sjénsinn .. skellir bara nýja tappanum á núna


Og opna húddið sjálfur?? :shock:

Eiga smurkallarnir ekki að sjá um það? :lol:
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests