Saxi wrote:
Ég hef þurft að tæma 90 lítra af X5. Sá bíll var settur í gang og gekk stutta stund áður en drepið var á. Fór undir aftursætið og dældi upp með dælu sem ég fékk framan á borvél.
Mig langar að spyrja hvað þessar málmflísar skemma komist þær á flug í kerfinu (nokkuð annað en dælurnar?) og hvað það felur í sér að skipta um ,,allt" kerfið eins og þú talar um slapi?
kv.
Það versta sem menn gera í þessu er að taka séns , þessi vél sem fór er vegna að háþrýstidælan reif sig og festist. Mótorinn yfir á tíma og allt sló saman.
Fólk skilur ekki alveg hættuna því málin eru ekki skoðuð næginlega nákvæmlega þegar þetta gerist.
Ég hef verið með bíl sem gekk algjörlega eðlilega og gat ekkert sett útá ganginn en hann hafði verið keyrður á bensíni þanga til dó á honum. Eldsneytinu skipt út og fannst ekkert að gangi.
Hinsvegar var tankurinn algjörlega hulinn málmögnum og það er mjög slæmt því menn verða að hugsa að málagnirnar koma einhversstaðar frá , þær koma jú frá háþrýstidælunni sem er eftir síu ATH. Agnirnar komast því ekkert annað en inn á spíssa og enda með að rífa þá.
Á endanum rífa agninar sig í gegnum síuna og endurtaka leikinn.
Ekki myndi ég vilja kaupa bíl sem þetta hefur verið gert því að venjulega kemur bilunin ekki strax fram heldur það geta verið 1-2 ár jafnvel.
Ég hef átt við ógrynni af svona málum.