ömmudriver wrote:
Sæll Viktor, ég heyri það að þú ert kominn með bíl í hendurnar.
Hvað kom nú fyrir hægra framhornið á honum?
Keypti hann tjónaðan, skilst að hann hafi ekið aftan á Land Cruiser 200 í fyrstu hálkunni í haust

Sezar wrote:
Stundum talarðu með rassinum Viktor minn
Hérna er auglýsing yfir BESTA eintakið VI707.
viewtopic.php?f=10&t=34275&start=0&hilit=oddsonÞú líka, því að þetta er auglýsing fyrir VT193, sem að er vita vonlaus og handónýtur bíll...
Mánisnær wrote:
VI707 er að mig minnir niðurskrúfaði blái bíllinn sem fékkst fyrir eitthvað mega gott verð fyrir þónokkrum mánuðum síðan.
Rosalega flottur bíll, ég skoðaði hann sjálfur en ég veit nú ekki með það að vera besta eintakið

Nýmálaður, allt í undirvagni endurnýjað og mótorinn er 100%, SHRICK knastásar og allt nýtt í efri hluta mótors.
Hérna inni virðast menn ekki vita neitt um hvað þeir eru að tala

Kílómetrastaða í mælaborði segir 123.***km en þegar að ég las af LCM í bílnum segir hann að bíllinn sé ekinn 138.***km
Svo að ekki er hann nú mikið "niðurskrúfaður" því að ~15.000km er ekki neitt til að væla yfir

Hef ekið þó-nokkrum E39 M5 og flestir þessir bílar á klakanum eru orðnir að einhverjum haugum, fóðringabank og skrölt, víbringur í bremsum og ýmislegt fleira

Það eina sem að ég hef út á VI-707 að setja er að það er ónýt hjólalega bílstjóramegin að framan en hún er til og verður sett í eftir hátíðarnar (sennilega eftir helgi)
