Já, það eru bara margir aðilar virðist vera sem treysta sér ekki í að djúphreynsa toppinn, á að vera tricky útaf "svampnum" sem er fyrir ofan efnið. Annars er toppurinn bara drullugur og reykingarlykt föst í honum, langar að laga það. Og með ábyrgð á vinnuni er ég bara að meina að viðkomandi sé tryggður ef toppurinn myndi eyðileggjast og það þyrfti að kaupa annan, eða klæðann upp á nýtt.
hefur þú prófað að notast við blettahreinsi t.d. frá Besta og ryksugu? Blettahreinsirinn er góður og hægt er að notast við hann og því næst raka tusku og að lokum ryksugu. Átt ekki að þurfa að gegnbleita toppinn við að ná all flestum óhreinindunum sem eru í efninu.