Stefan325i wrote:
Mjög fáir helir prefacelift bílar eftir hérna á klakanum og ef að þessi er þess virði að bjarga þá eru enn færri prefacelift iXar til , ég á t,d eina 325i 4dyria bílinn á landinu, persónulega fíla ég prefacelift bílana meira en það er bara ég en ég á bæði facelift og prefacelift.
Þessi bíll var alltaf flottur og ekki vissi ég að O.johnson hefði gefist upp á að laga vélina í honum.
Hann Óttar kláraði nú að gera við mótorinn boraði út blokkina, setti yfirstærð á stymplum keypti nýtt hedd í danmörku held ég að það hafi verið með öllu, oem hedd víst, setti reyndar heddið í millitíðinni á ix bílinn sem hann keypti sér, því hann kaupir hann með ónýtt/ekkert hedd, en svo notaði hann blokkina sem hann var búin að láta bora út, og sett nýja heddið á þá blokk.
Svo reyndar tók hann bílinn allan í gegn, lagaði ryð í undirvagninum, og tók allan undirvagninn og mótor í gegn, heyrði nú töluna hjá honum sem hann var búin að eyða í þetta, man hana reyndar ekki alveg en það var alveg að detta í eina kúlu.
Svo þeysar hann um götur á spáni í dag á þessum bíl, flutti þangað í Júlí.
