by bebecar » Mon 09. Feb 2004 09:47
OK, ég vissi ekki að hann hefði verið tjónaður enda hafði ég ekki séð hann nema úr fjarska, en mér finnst samt ekkert óeðlilegt að þurfa að blæða dálítið fyrir svona bíla (með ryðguðu) húddi en ótjónaða þar sem þetta er óheyrilega dýrt erlendis.
Þessi sem var seldur 2000 hann var í nokkuð góðu standi mekkanískt séð, nýkomin úr yfirhalningu frá Högna en svona frekar sjúskaður að sjá að innan og utan en einmitt "heillegur" samt sem áður. Held reyndar að það ahfi verið sett 900 þús á hann á þeim tíma.
En annars fyrst þið getið séð hver keypti hvað og hvenær.
Þá getið þið kannski flett upp fyrsta bílnum sem var fluttur hingað til landsins en pabbi vinar míns flutti hann inn 1988 eða 1989 og var það 1987, sá bíll var hreint út sagt geggjaður og var á þeim tíma sennilega dýrasti bíll landsins, enda flutti hann bílinn inn í félagi við annan.
Það gæti nefnilega verið að það sé sami bíll og þessi sem var seldur 2000.
Last edited by
bebecar on Mon 09. Feb 2004 09:50, edited 1 time in total.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road