SteiniDJ wrote:John Rogers wrote:Þarf greinilega að gefa Entourage annan séns
Annars horfði ég mest á The Big Bang Theory
fínustu þættir

Ætla að prófa Entourage, sjá hvernig það er. En sjálfur hef ég verið að horfa á The Big Bang Theory og þetta eru öskrandi góðir þættir. Fyrir utan Leonard, hann sívælandi smákrakki.
Eitt finnst mér sérstakt með Entourage, það er það að maður þarf að horfa á lágmark fyrstu seríuna til að sjá ljósið.
Ég einhvern veginn horfði á fyrstu 5 þættina og fannst þetta engin snilld, en málið er að þættirnir eru stuttir, og maður þarf
einhvern veginn að horfa á fleiri þætti til að detta inn í þennan heim.
En nú er það bara þannig, ef ég finn þörfina á að stíga aðeins til baka úr mínu eigin lífi til að slaka á og taka því rólega, þá smelli ég einum entourage á skerminn. Bregst ekki.
