Jæja, 535iA (M30B35 vél) bimminn minn fer nú að verða götuhæfur núna á næstu dögum.
Ég er búinn að spreða dálítið í viðgerð og annað viðhald, t.d. búið að taka olíupönnu undan og láta laga og skipta um tímakeðju og allar reimar og heddið er í yfirhalningu núna, verið að slípa alla ventla, þrífa og plana og miklu, miklu meira.
Ég er að skrifa þennann póst hérna aðalega útaf kælivökvanum.
Ég ætlaði mér að kaupa þennann BMW kælivökva því ég var búinn að lesa á svo mörgum stöðum að það eiginlega mætti bara ekkert annað fara á bílinn.
Jæja, núna fæst hann ekki, hvorki TB í hafnarfirði né IH eiga hann til og þeir báðir bara sögðu við mig að fara bara úti næstu bensínstöð og kaupa bláann því BMW kælivökvinn væri í raun bara blár kælivökvi!!!
Núna er ég á báðum áttum hvað ég eigi að kaupa. Ég var búinn að ákveða að kaupa þennann BMW kælivökva. Ég hef alltaf keypt grænan kælivökva á aðra bíla hjá mér þegar ég hef þurft þess.
Maður er búinn að heyra svo miklar tröllasögur um að kerfið í BMW sé svo viðkvæmt fyrir öðru en BMW kælivökvanum.
Á ég bara að kaupa bláaan, kaupa grænann því ég er vanur því eða fara alveg í long life rauðann því það er besti vökvinn!
Ég er að eyða dálítið miklum peningum i að gera við bílinn hjá mér og þess vegna er mér ekki alveg sama.
Notabene það er alveg búið að tæma út af kælikerfinu á bílnum hjá mér.
--
Olía
Ég hef yfirleitt keypt 10-40 semi synthetic olíur á bílana hjá mér. Nú vil ég kaupa eins góða olíu og ég get án þess að vera spreða.
Ég er að spá í að kaupa 5-40 fully synthetic olíu Comma sem fæst í bílanaust.
Svo er búið að segja við mig að mér ætti að vera óhætt að setja 0-40 fully synthetic á þessa vél, en hún er bara næstum helmingi dýrari en 5-40 fully synthetic olían og mér finnst verðmunurinn vera of mikill miðað við hvað ég er að gera.
Svo í sambandi við olíurnar sem fást í N1 Bílanaust, hvað segja menn hérna um muninn á Mobile og Comma. Er einhver svoleiðis munur annar er verðið t.d. á 5-40?
Hvaða skoðun hafið þið á þessu?



