Blikkandi / stöðugt AirBag ljós !

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Blikkandi / stöðugt AirBag ljós !

Postby Stormur » Wed 04. Feb 2004 21:23

Sælir snillingar.

Ég er með BMW 318 ´94.

Og ég var að taka eftir því um daginn að airbag ljósið er byrjað að blikka, og þegar ég er svo búinn að keyra (hafa bílinn í gangi) í lengri tíma að þá verður það stöðugt (rautt ljós).

Er vandamál á airbag-num, eða hvað er málið?

Ef einhver hefur hugmynd, þá væri gaman að heyra, eða ef einhver hefur lent í þessu áður.

Kv.

Stormur
Stormur
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 2
Joined: Wed 04. Feb 2004 21:17

Postby saemi » Wed 04. Feb 2004 21:30

Þetta er dæmi sem kallar á plögg inn í tölvu myndi ég segja!

B&L eða TB
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Ravis » Thu 05. Feb 2004 11:49

ég kannast líka við þetta , stundum blikkar og stundum er það bara rautt :shock:
kv. Siggi
Subaru Impreza 1.6 GL ´98
Honda CBR600RR ´04
User avatar
Ravis
Kassabílstjóri
 
Posts: 103
Joined: Wed 26. Mar 2003 22:43
Location: akranes / rvk

Postby Stormur » Thu 05. Feb 2004 15:03

Ravis:

Fannstu útúr þessu vandamáli, eða læturðu þetta bara eiga sig, málið er að ég ætla að setja bílinn á sölu um páskana, og þetta lítur frekar illa út að hafa rautt ljós blikkandi / stöðugt í mælaborðinu hehe, ætlaði að láta gera við þetta ef það er lítið mál.

Láttu mig vita ef þú færð einhverjar spurnir af því hvað gæti verið

Kveðja
Stormur
Stormur
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 2
Joined: Wed 04. Feb 2004 21:17

Postby Gunni » Thu 05. Feb 2004 15:05

Farðu með bílinn til Tækniþjónustu eða B&L þeir finna útúr þessu eins og skot. Ekki mundi ég kaupa bíl með logandi airbag ljós :|
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Haffi » Thu 05. Feb 2004 15:18

ég man að það var þannig í mínum bláa 320, Bjéogell sögðu mér að sensor í farþegasætinu fyrir farþegaairbagið væri ónýtur eða úr sambandi.

Það var ogguponzu mál að skipta um sensorinn en það var ekki minn höfuðverkur :D
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby BMWaff » Thu 05. Feb 2004 16:13

Blikkaði líka alltaf í mínum... mér var sagt að það væri annaðhvort af því að það væri ekki Airbag (var tjónaður) eða Skynjararnir væru ekki í lagi...

En til allrar lukku fyrir mitt litla líf virkaði það þegar það átti :)
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby Ravis » Thu 05. Feb 2004 16:53

Ég hef ekkert gert í því , þetta er bara nýbyrjað hjá mer :( Ætli ég fari ekki bara með hann B&L eða TB þegar ég get.
kv. Siggi
Subaru Impreza 1.6 GL ´98
Honda CBR600RR ´04
User avatar
Ravis
Kassabílstjóri
 
Posts: 103
Joined: Wed 26. Mar 2003 22:43
Location: akranes / rvk

Postby BMW_Owner » Thu 05. Feb 2004 20:47

Blessaður vertu....ef það verður eitthvað madjör mál að laga þessa skynjara eða eitthvað þá bara grefurðu þig undir mælaborðið og rífur þessa peru úr sambandi:D

kv.BMW_Owner :burn:
BMW 528Ia
User avatar
BMW_Owner
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1965
Joined: Sun 29. Jun 2003 16:58

Postby Svezel » Thu 05. Feb 2004 20:49

Þetta er örugglega þetta klassíska BMW vandamál með skynjarana undir sætunum. Ef þú tímir ekki að fara í B&L þá er örugglega nóg að taka sætin úr og sprauta vel af contact spray'i á skynjarann.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby elli » Fri 06. Feb 2004 10:04

á líka við þetta vandamál að stríða en minn er bara með airbag bílstjóramegin þannig að er þá bara skynjari bílstjóramegin ???? og til að finna þennann búnað þarf ég þá að lifta upp teppinu osfv. ??

maður er auðvitað alltaf að reyna að spara peninga !!

kv.

elli
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby Haffi » Fri 06. Feb 2004 13:54

Þessi skynjari er nú bara til þess að loftpúðinn farþegameginn springi ekki út af ástæðulausu.
Stórlega efa að það sé skynjari í bílstjórasætinu!?!?! Held að í 0.00000001% sé EKKI bílstjóri í bílnum þegar árekstur verður :lol:
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby arnib » Fri 06. Feb 2004 17:30

Haffi wrote:Þessi skynjari er nú bara til þess að loftpúðinn farþegameginn springi ekki út af ástæðulausu.
Stórlega efa að það sé skynjari í bílstjórasætinu!?!?! Held að í 0.00000001% sé EKKI bílstjóri í bílnum þegar árekstur verður :lol:


Nema að bíllinn sé kyrrstæður og einhver keyri á hann..

þá er nú óþarfi að púðarnir springi :)
Last edited by arnib on Fri 06. Feb 2004 17:48, edited 1 time in total.
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Haffi » Fri 06. Feb 2004 17:46

:) æiiiii!!
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

:)

Postby Chrome » Thu 19. Feb 2004 23:50

hehe veit þetta er gamalt en hef heyrt um svipað...94 segirðu er ekki bara verið að minna þig á að láta skoða air-bag? (það á að skoða þá fyrst er bíllin verður 10 ára og svo á 3 ára fresti eða eitthvað álíka ;)
...Mazda 323F 98'...

S.S.S
"We are all born ignorant, but one must work hard to remain stupid." -Benjamin Franklin
User avatar
Chrome
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1739
Joined: Tue 17. Feb 2004 15:36
Location: Kópavogur


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests