Hérna er bimminn minn, ég keypti hann í maí síðastliðinn og er fyrst núna að nenna að búa til svona þráð um hann. Þessi var í frekar dapurlegu ástandi þegar ég rakst á hann fyrst, var búinn að vera óganghæfur, fastur einhversstaðar í breiðholti og búinn að standa þar í fjóra mánuði. GRÚT skítugur, jafnt að utan sem að innan, allur útataður í fuglaskít og á sprungnu dekki. Það var deginum ljósara að þessi hafði ekki fengið neina ást í þónokkurn tíma, enda í vörslu kvenmanns á þessum tíma

ég setti mig í samband við eiganda, sem var kunningi föður míns sem var heppilegt og fékk ég bílinn á MJÖG sanngjörnu verði gegn því að ég drægi hann uppí TB og kæmi druslunni í gang. Þar var gert við hann fyrir um 50þúsund, skipt um hinar ýmsu fóðringar og fleira og borgaði seljandi það, sem er barílagi. Næst á dagskrá var að sjálfsögðu olíuskipti og skoðun, sem var lítið mál fyrir utan filmur í hliðarrúðum og óvirkt tengi í dráttarkrók, bæði hlutir sem ég var meira en glaður tilbúinn að losa af bílnum. filmurnar voru algjör leiðindi þó.
Síðan þá hef ég bara verið að dútla ýmislegt í bílnum, aðalega minimodd þar sem ég er námsmaður og á enga turbopeninga. Bíllinn hafði greinilega einhverntíma lent í tjóni vinstra megin, hann var allavega með sitthvor nýru, sitthvoran kastara og sitthvor framljós. framljósin pirruðu mig hvað mest þar sem hægra var projector og vinstra var svona oldschool týpan. ég fann mér allavega nýtt vinstra framljós á klink og fór svo í TB og fékk þar facelift framstykki með nýrum á góðu verði, stykkið var einnig heppilega í nákvæmlega sama lit og bíllinn. Já, svo keypti ég einnig í bandaríkjunum K&N 57i síuKIT, ekki einhvern svepp sem sumir setja framan á MAFinn sinn. ss með hitaskildi og meððí (ég nenni engu skítkasti á K&N draslið btw). Og síðan kom skemmtilegasta en vesenmesta moddið hingað til, M50 manifold. Það virtist eins og bíllinn bara neitaði að taka við þessu moddi, td hafði húddlæsingin verið í alveg fínu lagi þangað til að ég fór með hann niðrí skúr og ætlaði að byrja á þessu, og þá ákvað hann að læsa bara húddinu. ég komst yfir þá hindrun en þá birtust bara 15 aðrar í staðinn, þetta tókst svo að lokum tveimur vikum seinna þökk sé góðri hjálp frá Róbert crashed. En þá að sjálfsögðu kom lokahindrunin, sjálfskiptingin fór í limp mode, ss fastur í þriðja. 26þúsund króna viðgerð uppí Eðalbílum og það eina sem var að var brotinn pinni í tölvutengingar læsingunni. frekar neyðarlegt. En djöfull virkar þetta manifold! bíllinn snarbreyttist.
Nóg af texta, hérna eru nokkar myndir.


ignorið varadekkið, einhverjir krakkagemlingar settu nagla undir dekkið mitt.




Hann er keyrður 260xxx og innréttingin er upprunaleg, fáranlega gott ástand á henni (lúkkar betur í persónu) og bara bílnum yfirhöfuð.
vélin var tekin upp fyrir einhverjum árum síðan fyrir einhverja hundraðþúsundkalla, því þáverandi eigandi keyrði á spýtudrumb útí sveit og mölvaði pönnuna og vélin beyglaði húddið og eitthvað bull. þetta sagði annar fyrrverandi eigandi mér sem ég hitti fyrir algjöra tilviljun á dekkjaverkstæði um daginn.
Næst á dagskrá eru allavega, LSD (stóð reyndar í einhverjum eldgömlum söluþræði á huga "driflæsing", ég er allavega ekki að finna fyrir því í akstri) nýjar felgur, ný fjöðrun, Mtech framstuðari, BEINSKIPTING! og svo er ég að spá í angeleyes annaðhvort í þessi ljós eða bara ný stykki, og 3000k xenon (hef yfirleitt óbeit á xenon en mér finnst 3000k og 4500k sleppa) Svo í framtíðinni þegar maður á turbopeninga þá má spá í því+nýja vél. Og síðast en ekki síst þá hef ég eftir miklar vangaveltur, ákveðið að halda þessu forláta búðarkerruhaldi. Ég nenni ekki að standa í brasinu sem tengist því að losna við þetta og ég held að hann eigi eftir að skána með nýjum felgum+lækkun+mtech.