Thrullerinn wrote:
bimmer wrote:
Eingöngu aumingjar sem gera svona

.. eða bara krakkar

Lenti einu sinni í því að bíll í minni eigu var lyklaður allann hringinn og var af því verulegt tjón þar sem það þurfti nánast að heilsprauta bílinn.
Hélt að um væri að ræða krakka, ræddi við alla sem bjuggu í götunni þar sem ég lagði í 20-30 mín í löglegt stæði í botnlanga í virðulegu hverfi í 108 Rvk. um kl. 22 á virkum degi og var þetta í annað skiptið sem ég hafði komið í þessa götu. Enginn sá neitt....
Og svo nokkrum árum síðar komst ég að því að það var kona sem bjó í húsinu sem ég lagði við (n.b. í löglegt stæði, eitt af 4-5 fyrir framan lóðina hennar) sem var á því að stæðin við hennar hús tilheyrðu henni og að hún hefði skemmt bíla sem lögðu þar
N.b. þetta var "amma", kona sem var örugglega 60+ ára gömul

Augljóslega kexrugluðu því að vitiborið fólk myndi ekki haga sér svona

Ég fór á lögreglustöðina á sínum tíma til þess að kæra þetta og var þar sagt að "þeir gætu jú vélritað skýrsluna en hún færi bara ofan í skúffu og myndi gleymast þar". Ekkert myndi koma út úr þessu
Talaði við tryggingafélagið og var tjáð að jú þeir gætu bætt mér tjónið að vissu marki (fyrir utan sjálfsábyrgðina) en þá myndi ég auðvitað missa bónusinn svo að ég varð að punga þessu öllu út úr eigin vasa

Kannski hefði ég fengið eitthvað út úr þessu seinna meir ef ég hefði ekki látið lögregluna segja mér að það myndi aldrei koma neitt út úr þessu. E.t.v. hefur viðkomandi lögregluþjónn verið svona helv... latur eða bara lélegur í vélritun
