by Danni » Fri 23. Oct 2009 13:35
Ég held að það fari allt eftir því hvort þú varst í rétti eða órétti þegar þú klesstir bílinn. Ef þú varst í órétti og þetta er kaskótjón, færðu bílaleigubíl í 5-7 daga, fer eftir tryggingarfélagi. Ef að þú varst í rétti og þetta er ábyrgðartrygging hins aðilans að borga ættir þú að fá bílaleigubíl allan tímann á meðan viðgerð stendur.
ATH. Að ég er ekki að fullyrða heldur held ég að þetta er svona. Veit að þetta er rétt ef þú lendir í órétti, hef sjálfur lent í slysi í órétti og fékk þá bara bílaleigubíl í 7 daga, sömuleiðis bróðir minn. En í hin skiptin sem að ég eða fjölskyldumeðlimir mínir lenda í slysi í rétti þá voru bílarnir svo ónýtir að þeir voru borgaðir út og það var kominn nýr bíll í staðinn innan 7 daga.
Danni
'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi