Hef ekki gert sérstaklega mikið síðustu daga vegna undirbúnings fyrir lokapróf. Drullaðist þó til að henda blokkinni í mótorstandinn og klára að pilla það síðasta af blokkinni. Algjört pain að ná rörinu fyrir dip-stick úr blokkinni, var vel fast og hugsa ég kaupi nýtt þegar ég set þetta saman aftur.....er pínu laskað eftir óþreyjuna í mér blokkin er orðin nokkuð hrein og ég er búinn að nudda alla drullu í burtu og afskaplega lítið eftir af yfirborðsryði. Tek eina loka-umferð á þetta áður en ég mála. Ég sendi blokkina í borun eftir mánaðarmót og verður á sama tíma fræst fyrir höfuðlegum og blokkin auðvitað plönuð. Sama fyrirtæki tekur svo heddið eftir áramót og portar og flow-matchar, verulega flott verkstæði og frekar sanngjarnir í verðlagningu.
Veit einhver hvað blokkin sjálf er þung, er þá að tala um strípaða blokk ?
Stimplar, stangir, stangarlegur, stimpilhringir, stimpil-boltar (boss-pins), heddboltar. Höfuðlegurnar tek ég ekki frá MM, of mikið vesen að vera að fræsa fyrir þeim og auk þess kostnaðarsamt. En þetta mjakast
Tri-metal eitthvað rosalega fínt, þarf eiginlega að taka myndir af stimpilhringjunum og bara af öllu dótinu. Build-Quality er langt umfram mínar væntingar, ekki hægt að finna samskeytin á stöngunum með berum augum og finnst heldur ekki þó maður renni nöglinni yfir. Verður ógeðslega gaman að máta þetta ofan í blokkina þegar hún er klár.
Fékk mjög ítarlegar leiðbeiningar með þessu og clearance chart fyrir hvern cylinder vegna mismunandi kælingar. Fékk einnig borunar og hónunar leiðbeiningar sem ég mun að sjálfsögðu framlengja til þeirra sem sjá um þann hluta verkefnisins.
Jæja, núna eru prófin búin og ég búinn með skólann. Fór aðeins í skúrinn en var búinn að kaupa mér ódýra þvingu og 8cm langan 1/2 rörbút, þetta var notað í stað þess að kaupa ventla-töng virkaði bara fínt og tók innan við klukkutíma að fá ventlana úr og skola heddið innanvert. Leyfi þessu að liggja í bleyti í nótt og klára að þrífa heddið á morgun eða hinn, ventlarnir eru ekki svo sótugir en verða að sjálfsögðu slípaðir til og gerðir fínir. Nokkrar símamyndir að venju.
Þá er blokkin máluð og orðin frekar snyrtileg bruna með blokkina í borun og plönun á morgun og fæ hana vonandi tilbaka fyrir helgi. Þá verður mátun og byrjað að púsla saman í rólegheitum