Kannast einhver við þessar bilanir?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Kannast einhver við þessar bilanir?

Postby EMG » Mon 19. Oct 2009 01:25

Sælir... var að vonast til þess að einhver vissi nokkuð nákvæmlega hvað væri að..

en málið er að ég á BMW E36 318ia (sjálfskiptur) '96 sem að hegðar sér svona:

Þegar ég starta bílnum kemur mikið óhljóð í vélinni fyrstu tvær sek og hættir... eins og hún smyrji sig ekki.

Þegar ég keyri bílinn svo kaldann gengur bensínmælirinn upp og niður og er í hærri kanntinum, þegar ég er á jöfnum hraða virðist hann hægja á sér örstutt og svo aftur á þann hraða sem hann var á. Bíllinn virðist líka vera að eyða gríðalega miklu eldsneyti í þessum aðstæðum og hálfur tankur er farinn á 3 dögum við snatt. Ég veit að sjálfskiptir eyða meira en þetta eru bara öfgar. Þegar hann hitnar virðist allt verða eðlilegt nema það að ég heyri alltaf mjög lágt flaut þegar að ég ýti örlítið á bensíngjöfina.

Svo gerðist það líka um daginn að við sömu aðstæður að gullt ljós kom í mælaborðið með mynd af tannhjóli og upphrópunarmerki. Ég las í manualinn (sem að er allur á þýsku) og skildist að þetta stæði fyrir Transmission Electric problem. Bíllinn hegðaði sér alveg eins og hann gerir kaldur nema að nú varð mjög erfitt að keyra bílinn og var eins og að hann snuðaði á kúplingunni og væri í háum gír. Þegar ég kveikti svo aftur á honum nokkrum stundum síðar var ljósið farið og vandamálið farið.

Bíllinn er á 17" lágum prófíl og er óeðlilega þungur í stýri. Þegar ég beygi örlítið í sitthvora áttina fer það ekki sjálkrafa til baka (20¨ beygja) og á eðlilegum hraða á þjóðveginum er hann nánast hættulegur og kastast til í sitthvora áttina. Ég hef átt bíla á stærri dekkjum en þetta en þeir létu ekki svona. Ég veit að þeir eiga það til að leita í förin en ekki svona. Ég prufaði annan allveg eins bíl á 18" sömu árgerð og þar var þetta allt annað mál, léttari í stýri og leitaði ekki svona í allar áttir.
EMG
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 6
Joined: Wed 19. Aug 2009 23:41

Re: Kannast einhver við þessar bilanir?

Postby crashed » Mon 19. Oct 2009 11:38

Þegar ég starta bílnum kemur mikið óhljóð í vélinni fyrstu tvær sek og hættir... eins og hún smyrji sig ekki.


mín reynsla af þessu er að rör númer 14 sé stíflað og hann eigi í vandræðum með að koma smurolíu í gegnum það en svo lagast það eftir smá því hann sprautar af meiri þrístingi á öðrum stöðum og svo dreifist það yfir þá staði sem hann smir ekki eða að pakningin leki
http://www.realoem.com/bmw/showparts.do?model=CA41&mospid=47436&btnr=11_0434&hg=11&fg=25

með bensínmælinn að þá er mín reynsla þar að flotholtin eru í rugli

og með bensíneiðsluna að þá geta verið ónítar slöngur eða o hringirnir ónítir á spísunum
flautið sem þú heirir hef ekki hugmynd en gæti það verið að koma frá bensíndæluni sjálfri?
erfit að dæma það þegar maður heirir þetta ekki

með skyftinguna mæli með að þú látir lesa af bílnum í tölvu, gæti verið ónítir skynjarar vesen á tölvuni, hvað er langt síðan þú skiftir síðast um sjálfskiptivökva ath ekki bæt heldur skift :D

þíngdin í stíri gæti verið vegna þess að stírisvökvin sé ónítur prufaðu að skoða litin á vökvanum á að vera skær rauður ef hann er í lagi annars gæti þetta verið stírisdæla sem er að faila eða maskínan sjálf og að öllum lýkindum að þetta með að bíllin rási mikið að þá lagast það hugsanlega á sama tíma. ef þú skoðar stírismaskínuna undir bílnum að þá sérðu stórann bolta sem gengur inní maskínuna og þú losar hann til að drena af stírisdæluna og svo myndi ég losa forðabúrið úr honum og hreynsa úr því þar sem það tæmist ekki alveg
Róbert Már Róbertsson
BMW 740 E38
BMW 325 E36 "91 (SELDUR)
Gsm: 6150628
crashed
Getawaybílstjóri
 
Posts: 939
Joined: Tue 10. Jul 2007 22:13
Location: njarðvík

Re: Kannast einhver við þessar bilanir?

Postby Maddi.. » Mon 19. Oct 2009 12:58

Er eitthvað óhljóð eða surg hjá þér í stýrinu?
Ég er með ónýta stýrisdælu í mínum og það lýsir sér svona... óhljóð þegar ég beygi og í samræmi við hækkandi snúning vélarinnar, og stýrið snýst ekki til baka. Svolítið eins og það sé sandur inná kerfinu.
User avatar
Maddi..
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1422
Joined: Fri 06. Feb 2009 20:21
Location: Kársnesið

Re: Kannast einhver við þessar bilanir?

Postby BirkirB » Mon 19. Oct 2009 15:18

Það vr ónýt stýrisdæla í mínum þegar ég var nýbúinn að kaupa hann. Það var eins og að keyra bíl með vöðvastýri...fann ekki einu sinni fyrir loftlausu framdekki...
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Re: Kannast einhver við þessar bilanir?

Postby lacoste » Mon 19. Oct 2009 16:25

EMG wrote:Svo gerðist það líka um daginn að við sömu aðstæður að gullt ljós kom í mælaborðið með mynd af tannhjóli og upphrópunarmerki. Ég las í manualinn (sem að er allur á þýsku) og skildist að þetta stæði fyrir Transmission Electric problem. Bíllinn hegðaði sér alveg eins og hann gerir kaldur nema að nú varð mjög erfitt að keyra bílinn og var eins og að hann snuðaði á kúplingunni og væri í háum gír. Þegar ég kveikti svo aftur á honum nokkrum stundum síðar var ljósið farið og vandamálið farið.


Hann hefur farið i trans program hjá þér, þá heldur hann sig bara í einum ákveðnum gír. Ef þetta fer af þegar þú slekkur og kveikir þá er þetta oftast bara einhver smávægileg villa, þarft ekkert að hafa mega áhyggjur af því. En ef þetta fer að koma oftar þá getur þetta verið allir fjandinn.
ovlov
BMW e39 523i (Seldur)
Audi S4 Turbo (Seldur)
BMW e34 525ia (Seldur)
e46 318 ci (Seldur)
e36 320 coupe (Seldur)
User avatar
lacoste
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 390
Joined: Fri 26. Sep 2008 17:42


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests