Þannig er mál með vexti að bílstjórahurðin á X5 hjá mömmu vill ekki opnast utanfrá, ég er búinn að kippa hurðaspjaldinu af og skoða þetta aðeins, og það er einn vír sem liggur niðurí læsingarmekkanóið frá hurðarhúninum og hann er ekki slitinn, hann er bara ekki nógu strekktur, veit einhver hérna hvort það sé hægt að kippa þessu úr og strekkja á vírnum eða hvort þetta sé eitthvað annað sem er farið.
Með von um góð svör Axel Jóhann Helgason.


