Sælir ætlaði aðeins að athuga hvernig menn hafa verið að haga sér í ryðviðgerðum.
Málið er að ég er með e24 og menn vita nú að það er hægt að gera þessa bíla mjög töff, en málið er að mín sexa er mjög ryðguð, sá það eftir að ég strípaði hann, mjög ryðgaður að innan sérstaklega, gólfið er ónýtt er búinn að skera það úr og kaupa plötur til að sjóða í, þakið ryðgað ásamt topplúgu sleða, rúðufalsinn ryðgaður og já bara almennt ryðgaður,
en að utan bretti húdd, afturbretti og hurðarnnar eru alveg heilar eða mjög lítið ryð, t.d. nýlega sprautaður að framan eftir tjón.
En spurningarnnar mínar eru á maður að senda bílinn í sandblásun/glerblásun borgar það sig og hvað kostar svoleiðis aðgerð?
eða á maður að henda bílnum eða vill hugsanlega einhver taka þetta að sér?
þetta veltur sem sagt aðalega á hvort það borgi sig að fara með hann í sand/glerblásun og hvað það kosti haha.








