Ég fór nokkru sinnum áður en þeir fluttu til að sækja eitt og annað, endaði oftast með helmingi meira af drasli en ég ætlaði að kaupa, af því að ég sá það og "varð að eignast það" þó ég þyrfti það ekki. hehe.. Ég trúi ekki öðru en að fyrirtækið tapi FEITT á því að hleypa manni ekki inn í port. Því ef maður sér hlutina, kaupir maður oftast meira. Ef ég kem á staðinn, vantar 1 öskubakka og fæ ekki að fara inn í port, kaupi ég væntanlega þennan eina öskubakka. En ef ég fæ að fara í bílinn sjálfur, rekst ég kannski á 5-10 hluti í bílnum sem líta betur út en sömu hlutir í mínum bíl og ég enda á því að kaupa þá.
Mjöööög slæmt fyrir Vöku.. En gott fyrir mig í raun, þar sem ég labba út með meiri pening en áður hehe
EDIT: man smá sögu akkúrat núna..
Það var lítil sjoppa úti á landi sem seldi prins polo. En það seldist alltaf upp á fyrsta degi. Svo leið vika, og allir brunuðu út í þessa sjoppu (sem var eina sjoppan í bænum) til að kaupa prins polo. En nei, það kom ekki...
Þá hafði eigandinn ákveðið svolítið.. hann sagði....:
"Það þýðir ekkert að panta þetta helvítis drasl, það selst alltaf strax upp!"
True story
