saemi wrote:
Tómas og Þórður.
Ég skil alveg hvað þið eruð að fara.... EN ég skil líka hitt.
Nú er ég búinn að rúnta um á 4.6is í 1 og hálft ár (þessi fáu skipti sem konan er ekki á honum

) og ég verð að segja það að þessi fílósófía svínvirkar. Það er kannski ekki þörf á ///M útgáfu skal ég viðurkenna, en að geta sest upp í slyddujeppan sinn og trampað allt í botn og skilið Porsche Boxter eftir í reyk, tekið beygjur eins og maður osfrvs. er bara gaman.
Þetta er svona dæmi þar sem maður vill hafa performance við hendina þó maður sé ekki alltaf að nota bílinn til hins ítrasta.
Að sjálfsögðu er betri performance með sedan eða coupe bíl. En þegar aðrir þættir hafa fengið mann til að velja bíl eins og X5, af hverju þá ekki að bjóða upp á ///M möguleika þrátt fyrir það.
Þetta er svona eins og að eiga kökuna alla sjálfur. Kökuna sem öllum finnst góð, ekki bara okkur

Vel að orði komist eins og oft áður. Ég hef heyrt svipuð rök frá þeim sem eiga öfluga jeppa/slyddujeppa, Cayenne turbo, X5 4.6/4.8iS, RR supercharged o.s.frv. en ekki orðað svona vel.

Ég, eins og fleiri, væri meira en lítið til í X5 M, hljómar sem skemmtilegasti X5-inn enn sem komið er og þarf kannski ekki að koma mikið á óvart.
_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR