Skipta um olíu sjálfur?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Skipta um olíu sjálfur?

Postby HjorturG » Mon 05. Oct 2009 10:34

Var að spá í að prófa að skipta um olíu og olíusíu sjálfur, hvaða olíu á ég að nota á 316 E36 og hvað á ég að kaupa mikið? Hvar get ég fengið olíusíu? Er þetta mikið mál?

Takktakk :thup:
BMW 316 Compact E36 M-tech 1999 NM-346
-APEX lækkunargormar-
User avatar
HjorturG
Kassabílstjóri
 
Posts: 226
Joined: Sun 12. Oct 2008 20:54

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby Einarsss » Mon 05. Oct 2009 10:54

ætti að standa í manualinum hvaða olíu þú þarft og hve mikið.. restina færðu í N1 uppá ´bíldshöfða (bílanaust)
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby GriZZliE » Mon 05. Oct 2009 11:58

Annars eru allar upplýsingar hjá N1 hversu mikið mang og allt það lætur þá bara fá bílnúmerið :wink:
E-39 540 '96 M-aður!
GriZZliE
Kassabílstjóri
 
Posts: 215
Joined: Fri 17. Mar 2006 04:48
Location: Suðurnes

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby Stebbtronic » Mon 05. Oct 2009 12:02

Skv mínum uppl. ættirðu að nota 15w/40 og 4L. En það er pappasía á þessum vélum og það getur verið svolítið leiðinlegt að eiga við þetta ef maður er ekki með rétta stöffið til að losa hana...
e21 315 "83"
Stebbtronic
Getawaybílstjóri
 
Posts: 925
Joined: Mon 03. Nov 2003 18:40
Location: @ the spot...

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby Axel Jóhann » Mon 05. Oct 2009 12:15

Stebbtronic wrote:Skv mínum uppl. ættirðu að nota 15w/40 og 4L. En það er pappasía á þessum vélum og það getur verið svolítið leiðinlegt að eiga við þetta ef maður er ekki með rétta stöffið til að losa hana...





Einn 13mm fastann lykil? :mrgreen: En já það fer 15/40 eða 10/40 og 4 lítrar. Sían heitir HU 921 x og kemur frá MANN FILTER
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby gardara » Mon 05. Oct 2009 13:06

Hvað með 0/40?
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby Axel Jóhann » Mon 05. Oct 2009 13:09

Það þarf ekkert betra en 10 40 á svona vélar, annað er alger óþarfi að vera eyða meiri pening í oliuna, 10 40 er alveg yfirdrifið nógu góð.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby ///M » Mon 05. Oct 2009 13:15

Axel Jóhann wrote:
Stebbtronic wrote:Skv mínum uppl. ættirðu að nota 15w/40 og 4L. En það er pappasía á þessum vélum og það getur verið svolítið leiðinlegt að eiga við þetta ef maður er ekki með rétta stöffið til að losa hana...





Einn 13mm fastann lykil?


Sumar vélarnar eru með svona risa plastlok sem er skrúfað á... virkar enginn 13mm lykill á það :)
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby HjorturG » Mon 05. Oct 2009 16:06

Jæja kominn með 4L af Mobil 10-40W og glænýja olíusíu, fyrsta skipti sem ég skipti um olíu, wish me luck, læt ykkur vita hvernig þetta gekk á eftir :D

Djöfull er gaman að geta grúskað í þessu sjálfur! :thup:
BMW 316 Compact E36 M-tech 1999 NM-346
-APEX lækkunargormar-
User avatar
HjorturG
Kassabílstjóri
 
Posts: 226
Joined: Sun 12. Oct 2008 20:54

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby Axel Jóhann » Mon 05. Oct 2009 17:59

///M wrote:
Axel Jóhann wrote:
Stebbtronic wrote:Skv mínum uppl. ættirðu að nota 15w/40 og 4L. En það er pappasía á þessum vélum og það getur verið svolítið leiðinlegt að eiga við þetta ef maður er ekki með rétta stöffið til að losa hana...





Einn 13mm fastann lykil?


Sumar vélarnar eru með svona risa plastlok sem er skrúfað á... virkar enginn 13mm lykill á það :)




Ok fyrirgefðu 36 eða 38 lykill minnir mig. :mrgreen:
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby Stebbtronic » Mon 05. Oct 2009 18:36

Veit hvernig síuhús þú ert að meina og þau eru með 36mm haus á sér, en í e36 er ekki þessi haus á síuhúsinu og verður maður því að nota síutöng eða bolla til að losa þetta, reyndar hægt að nota band og skrúfjárn líka en það er bara gert í Harlem...
e21 315 "83"
Stebbtronic
Getawaybílstjóri
 
Posts: 925
Joined: Mon 03. Nov 2003 18:40
Location: @ the spot...

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby HjorturG » Mon 05. Oct 2009 19:18

Jæja, þetta hafðist! :D Miðaðvið fyrsta skipti þá gekk þetta nú nokkuð smooth held ég bara!

Byrjaði á því að tjakka bílinn upp
Image

Olían að leka úr pönnunni..
Image
Image
Image

Nýja stöffið!
Image

En núna byrjaði vesenið! Það reyndist alveg ÓMÖGULEGT að opna plastlokið af olíusíunni, sama hvað ég reyndi þá var þetta bara pikkfast! Leitaði hátt og lágt að hentugu verkfæri til þess að reyna að losa þetta, en ég fann ekkert þannig það var einungis eitt hægt að gera í stöðunni....

Búa það bara til!

Þetta virkaði líka svona glæsilega, því meira sem ég tók á því meira hertist þetta og lokið losnaði loksins! :thup:
Image
Image

Gamla sían og nýja, nýjir O-hringir líka..
Image

Svo bara setja allt saman aftur, boltann í olíupönnuna og fylla á með nýju olíunni og vélin malar eins og ljón! :D


Takk fyrir hjálpina með þetta, afskaplega er nú gott í kreppunni að geta bjargað svona smáhlutum sjálfur :thup:
BMW 316 Compact E36 M-tech 1999 NM-346
-APEX lækkunargormar-
User avatar
HjorturG
Kassabílstjóri
 
Posts: 226
Joined: Sun 12. Oct 2008 20:54

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby ingo_GT » Mon 05. Oct 2009 19:33

Sniðugt hjá þér að búa til síjutöng :)

Munn klárlega stela hugmyndinni þinni og búa mér til svona líka þegar ég smyr bíl næst :mrgreen:
Bmw e36 323 Touring M-tech

Seldir
3 e39 523ia-540ia
8 e36 316-318-318is-320-325
2 e30 316-325
ingo_GT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2371
Joined: Wed 23. Jul 2008 02:26
Location: Í skúrnum eða á hlið

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby Maddi.. » Mon 05. Oct 2009 20:01

Er þessi bíll ekki oft hérna á Kársnesbrautinni?
User avatar
Maddi..
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1422
Joined: Fri 06. Feb 2009 20:21
Location: Kársnesið

Re: Skipta um olíu sjálfur?

Postby HjorturG » Mon 05. Oct 2009 20:15

Maddi.. wrote:Er þessi bíll ekki oft hérna á Kársnesbrautinni?


Hann var alltaf þar, var að vinna hjá Garðlist í sumar :)
BMW 316 Compact E36 M-tech 1999 NM-346
-APEX lækkunargormar-
User avatar
HjorturG
Kassabílstjóri
 
Posts: 226
Joined: Sun 12. Oct 2008 20:54

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests