- 1 - Ný stefnuljós og díóðuljós að aftan (bls. 2)
- 2 - 18" M6 replicu felgur (bls. 2)
- 3 - Nokkrar myndir á sumarfelgunum (bls. 3)
- 4 - Eibach lækkunargormar (bls. 4)
- 5 - Nokkrar myndir á vetrarfelgunum (bls. 4)
Loksins kominn á BMW aftur!
Fyrir valinu varð BMW E46 328i, árgerð 1999. Bíllinn var fluttur inn nýr af B&L og er búinn að vera í eigu sömu aðilana í öll þessi ár. Bíllinn fór aldrei á bílasölu, ég þekkti aðeins til fyrri eiganda og þegar ég frétti af að bíllinn gæti hugsanlega verið til sölu setti ég mig í samband og viku seinna var ég kominn á bílinn. Bíllinn hefur alltaf verið þjónustaður hjá B&L og er því í toppstandi enda bara rétt skriðinn yfir 100 þús. km.
Helsti búnaður er:
Beinskipting
Leðurinnrétting
Sportsæti
Rafmagn í sætum með minni
Xenon ljós
Sóllúga
Harman/Kardon hljóðkerfi
CD magasín
Regnskynjari








