Ég er með annan bíl á tryggingum hjá þeim ásamt brunatryggingu á íbúðinni og annað smávægilegt og hef aldrei verið valdur af tjóni.
Ég ákvað að vera grófur og spurði hvort ég gæti fengið þessa fornbílatryggingu á hann þótt svo hann verði ekki fornbíll fyrr en eftir rúmlega ár og bjóst nú við að fá nei við því sem ég fékk og kom það nú ekki mikið á óvart. Það sem kom mér á óvart var að til að fá bíl tryggðan hjá TM sem fornbíl þarf hann að vera orðinn fornbíll (skiljanlega), eigandinn þarf að vera í fornbílaklúbbnum (finnst það nú óþarfi en allt í góðu) og svo þriðja og loka atriðið HANN ÞARF AÐ VERA AMERÍSKUR!!!!
Ég þakkaði pennt fyrir mig og er núna að vinna í að flytja mig til annars tryggingafélags sem eru ekki jafn miklir rasistar

