Sælar,
"Það er eitthvað hljóð í bílnum mínum"
Málið er það: .. Þegar ég keyri yfir ójafnan veg s.s ef það er einhverjar sprungir í veginum eða þegar hann kemur allt í eitthvað uppúr veginum og bílinn fjaðrar upp og strax niður þá kemur svona klonk aftan úr bílnum og stundum framan úr honum. Þetta kemur augljóslega frá hjólabúnaðinu og þar með gormunum. Ég skoðaði gormafestingarnar framan í honum og rærnar voru frekar laflausir og ég herti þá, svo reif ég allt úr honum til að komast að afturgormafestingunum og þar var saman sagan. Þar er einhver skífa sem ég gat léttilega snúið.. þannig að ég festi rærnar og skífan varð föst. Síðan minkaði hljóðið alveg um helling og ég heyrði varla í því þar til nú. Nú er þetta djöfulsins klonk komið aftur.. er þetta alltaf að losna aftur? .. af hverju er það? eða getur þetta verið eitthvað annað ?
Með fyrirfram þökk,
DóriSig


