
Keypti mér þennan ágætis E30 318ia í síðustu viku og skellti mér í smá roadtrip og sótti hann til Akureyrar.

Ástandið á bílnum er held ég bara ágætt m.v. aldur og fyrri störf, lakkið er frekar þreytt en skánaði mikið við smá TLC. Lítið af ryði, helst neðst á hægra frambrettinu sem er eitthvað ryð af viti. Innréttingin er í fínu ástandi fyrir utan bílstjórasætið sem er mikið slitið. Vélin tikkar/glamrar frekar mikið en mér skilst að það sé frekar algengt með þessa M40 rokka, undirlyftur, knastás eða eitthvað slíkt.
Framtíðarplönin eru ekki mikil, aðallega nota á meðan ég sjæna þann græna aðeins til á næstunni. Svo verður hann í kerrudrætti næsta sumar.

Hér er svo fæðingarvottorðið, vel stappaður af aukabúnaði!
Vehicle information
VIN long WBAAJ610603307445
Type code AJ61
Type 318I (EUR)
Dev. series E30 ()
Line 3
Body type LIM
Steering LL
Door count 4
Engine M40
Cubical capacity 1.80
Power 83
Transmision HECK
Gearbox AUT
Colour WEINROT (224)
Upholstery ANTHRAZIT STOFF (0274)
Prod. date 1988-11-07
Order options
No. Description
199 EQUIPMENT FOR LEADED FUEL
215 POWER STEERING,DEPENDING ON ENGINE SPEED
314 HEATED WINDSCREEN WASHER NOZZLES
320 MODEL DESIGNATION, DELETION
350 WAERMESCHUTZGLAS GRUEN, RUNDUM
428 WARNING TRIANGLE
821 Norwegen-Ausfuehrung
850 ADD FUEL TANK FILLING FOR EXPORT
925 SHIPPING PROTECTION PACKAGE
958 Interne Kabelbaumauswertung
Myndir:
Aðalafsökunin fyrir kaupunum, krókurinn!


Lakkið á húddinu og toppnum var orðið frekar þreytt, hér er aðgerðin byrjuð að reyna að koma því í aðeins betra ástand:

Fyrir og eftir myndir af toppnum. Væri örugglega hægt að gera betur með einhverju öðrum græjum en höndunum en alveg ágætt samt:
