Hef lent í því undanfarið ef ég keyri á sæmilegum hraða, svona 60-80, og keyri ofaní hjólför kemur mikið slag í bílinn. Þetta veldur því að hann kippist til.
Ég er búinn að skipta um allar stífur og eins búið að hjólastilla af fagmanni (Högni í hafnarfirði). Dekkin eru frekar léleg en ég trúi ekki að þau séu að valda þessu þar sem þetta er nokkuð mikið. Ég vill eins ekki skipta um dekk fyrr en ég er búinn að polyhúða felgurnar sem verður í vetur.
Einhverjar hugmyndir ? Bognir dempara, gormar, grindarskekkja etc






