Fljúgandi hálka á höfuðborgarsvæðinu
Fljúgandi hálka er í húsagötum íbúðarhverfa á höfuðborgarsvæðinu og hið sama var uppi á teningnum er ökumaður var á ferð á mótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar um tólfleytið. Rann bíllinn í mikilli hálku og hafnaði á ljósastaur. Var ökumaður fluttur á sjúkrahús, talinn lærbrotinn og einnig með skrámur í andliti.
Ég held þetta hafi verið Haffi, eða allavega bíllinn hans. Haffi ef þetta hefur verið þú þá finn ég til með þér og vona að þér batni sem fyrst.




