Mín persónulega skoðun er að síðustu alvöru Benzarnir hafi verið W140, W124 og hugsanlega W202 (C - línan fyrsta).
Ég gekk t.d. framhjá glænýjum E240 í gær og mér finnst þetta bara ljótt, blöðrulegur, með alltof stór ljós og myndi einna helst á Daewoo, nýja fimman er til samanburðar stórglæsileg (þótt hún myndist ílla).
Við söluna má svo bæta Mini One, Cooper og Cooper S sem er auðvitað "BMW" og þá eru þeir komnir langt fram úr. Svo má ekki gleyma Rolls Royce en á móti hefur Benz Smart og Maybach.
Persónulega finnst mér mikill söknuður í alvöru benzunum en að sama skapi gleðst maður yfir velgengni BMW - en eins og svo oft áður þá finnst mér bæði best. Ég vil geta valið um úrvals Benz OG BMW. Ekki það að ég eigi pening, en það kemur nú kannski að því



