Axel Jóhann wrote:
SteiniDJ wrote:
tinni77 wrote:
bjornf wrote:
bíddu vó hvað er í gangi hvar er þetta hax og hvað er það sem hrjáir þennann aðila?

hax...hann getur séð passwordin hjá öllum
það er þetta "hax"
Smá leiðrétting, hann getur séð md5 útgáfuna af lykilorðinu þínu. Það er ómögulegt að afkóða það, en þú getur hinsvegar leitað á netinu og fundið síður þar sem menn pósta md5 kóðum og orðið sem það kom af. Þannig, hann sér ekki öll lykilorð, heldur bara sum þeirra.
T.d mitt.

Lykilorðið þitt var líka alveg ultra weak

Gaurinn komst yfir notendatöfluna í gagnagrunninum fyrir spjallborðið og þar eru lykilorðin geymd sem md5 tætigildi af lykiliorðinu. Tætigildi er ekki afkóða en menn hafa verið að safna saman tætigildum í svokallaðar regnbogatöflur (rainbow tables) sem ýmis tól fletta upp í, þannig fer afkóðunin fram.
Veljið bara sterk og góð lykilorð, þá komast menn ekki inn á aðganginn ykkar

Voru ekki til legit síður þar sem maður gat kannað "styrkleika" lykilorða sinna. Þá meina ég ekki einhverjar sora-síður sem stela lykilorðunum þínum í leiðinni