Felguþjófatoppavandræði helgina 29-30/8

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Felguþjófatoppavandræði helgina 29-30/8

Postby Bjöggi » Sat 29. Aug 2009 11:39

Þannig er mál með vexti að ég snéri í sundur þjófatopp. Ég þarf að eyða helginni í viðgerðir á e32 alla helgina en til að klára verkið þarf ég þjófatopp.

Á einhver þarna úti sett með þjófatoppum eða eitthvað ágætissamansafn?

Langar ekki einhverjum miskunarsömum spjallverja að renna við hjá mér meðan hann er á rúntinum og leyfa mér að máta :oops: ?
Ég þarf bara að losa boltana snöggvast svo set ég bara venjulega í staðinn.

Fyrir greiðann fá menn að launum fría áfyllingu á rúðupissið og að sjálfsögðu er heitt á könnunni.

Ég verð alla helgina á skrifstofutíma í Skeifunni 5 á Almenna bílaverkstæðinu (við hliðina á Aðalskoðun í Skeifunni).
Svo að sjálfsögðu get ég komið og sótt ef einhver vill lána.

Með von um góð viðbrögð og einhver vilji gera góðverk, þeir segja að karmað launi vel.
Bjöggi
BMW 318IA E46 Touring '01
User avatar
Bjöggi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 346
Joined: Thu 01. Jun 2006 13:41
Location: RVK

Re: Felguþjófatoppavandræði helgina 29-30/8

Postby Bjöggi » Sat 29. Aug 2009 15:06

þessu hefur nú verið bjargað.
Bjöggi
BMW 318IA E46 Touring '01
User avatar
Bjöggi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 346
Joined: Thu 01. Jun 2006 13:41
Location: RVK


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 62 guests