....... ég fann eitt stykki M30B35 til sölu hjá honum Sæma pilot og náði ég í hana hjá honum á leið úr vinnu í gær. En þessi vél er úr ZR-927(E32 735iA '91) fyrrverandi hans X-Ray hérna á spjallinu og var henni snýtt all verulega af B&L mönnum fyrir ca. tveimur árum og var m.a. skipt um hedd.
En ég henti vélinni á vélarstandinn í dag með aðstoð frá Danna og er ætlunin að snurfusa hana aðeins til áður en hún fer ofan í salinn á sjöunni.
Frrrrekar tómlegt
Og svo tók ég þessa mynd sérstaklega fyrir Gunnar því að hann er svo mikill Jimny fan, en pabbi á þennan djöful og er hann nýkeyptur frá AK. city og hefur verið skýrður "Trukkurinn"
Og já hann dróg kerruna með vélina í frá Hfj. til Sunny Kef. og stóð sig með stakri prýði


