En í sambandi við "túrbínurnar" þá sá ég test sem var gert á þeim á Nurburgring brautinni í fyrra. Það var mikil umræða á E34 M5 yahoo-spjallinu um kælihæfni þessara felgna. Þannig að nokkrir gaurar tóku sig til og fóru með M5 á original felgum og tóku einn hring á brautinni.
Testið fólst í því að öðrum megin á bílnum voru túrbínurnar á felgunum en hinum megin höfðu þær verið teknar af og felgurnar bara hafðar "berar".
Þegar hringurinn var búinn fóru 4 gaurar með fjóra hitamæla og mældu hitann á diskunum, öllum í einu. Ég man ekki tölurnar á þessu, en það munaði tugum gráða á því hvað diskarnir voru kaldari þeim megin sem túrbínurnar voru!!!!!!
Svo er aftur annað mál að maður hefur ekkert við þessa kælingu að gera hérna heima á klakanum, nema kannski í undantekningar tilvikum

. En mergur málsins er sá að þetta virkar!
Throwing star virkar líka, en ekki eins vel og turbine!