Talandi um leðrið, ég þreif afturbekkinn með Mothers leðurhreinsi og árangurinn er ótrúlegur. Leðrið fór úr því að vera dökkbrúnt í að verða ljósbrúnt, alveg ótrúlegur munur. Ég reyndi að taka mynd í miðjum klíðum en held samt að myndin geri þessu ekki góð skil, maður veður bara að sjá þetta eigin augum. Þetta er í fyrsta skipti sem ég verð kjaftstopp af góðri virki af svona efnum.
Efnið
ÁrangurinnEfri hlutinn hefur verið þrifinn eina umferð (ég ætla að fara tvær) en neðri hlutinn ekki.

Ég notaði naglabusta (sem sumir kalla skrúbb) til að ná inní raufarnar á leðrinu og þetta virkaði svona líka vel.
Stífa #2 af 22 er líka kominn í, þær áttu að vera fleiri um helgina en mig vantaði almennilega "ball joint revover" klemmu þ.a. afköstin voru afar lítil.
Í staðinn fyrir stífurnar var skottlokið og húddið lauslega massað upp, það verður gert betur þegar bónvélin kemur í hús ásamt restinni af boddýinu. Ég gerði líka við tvær riðskemmdir með því að busta upp svæðið með litlum vírbusta, sparsla í sárið og mála svo yfir. Ég ætla að fara með vatnspappír yfir þetta til að ná mestu hólunum úr, massa vel yfir til að fá glans og mála svo glæru yfir. Ekki fullkomið en dugar amk eitthvað.
Ég komst líka að því að kæliviftan mín fyrir loftkælinguna er ekki ónýt, takk Danni fyrir aðstoðina, heldur liggur bilunin annarstaðar. Ég hef séð kenningar um að vírarnir geti orðið akkurat það slitnir að maður fái straummælingu á multimeter en að hún dugi ekki til að knýja viftuna. Næsta skref er þó að fylla á loftkælinguna, skoða öryggi og relay ásamt því að kíkja á þessa víra. Ef ekkert af þessu dugar er næst að setja bílinn í frekari ecu aflestur.