Olíuverk

Hér skal spjalla um BMW.

Olíuverk

Postby Hemmi Þór » Tue 21. Jul 2009 18:09

Sælir BMW aðdáendur.Mig vantar olíuverk í 320d árgerð 2000, beinskiptur. BMW númer 13517787562. Ef einhver á þá gott, annars er öll aðstoð vel þegin í leitinni að nýju eða uppgerðu verki. Best væri ef einhver þekkti slóð á byrgja í Flennsborg í Þýskalandi.
Kv Hemmi.
Hemmi Þór
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 1
Joined: Tue 21. Jul 2009 17:49

Re: Olíuverk

Postby Stebbtronic » Tue 21. Jul 2009 18:16

Er þetta ekki Bosch olíuverk? Spurning um að ath hvort að þeir í Framtak-Blossa geti ekki bara tekið upp og stillt gamla olíuverkið, er örugglega ódýrara en að kaupa nýtt.
e21 315 "83"
Stebbtronic
Getawaybílstjóri
 
Posts: 925
Joined: Mon 03. Nov 2003 18:40
Location: @ the spot...

Re: Olíuverk

Postby saemi » Tue 21. Jul 2009 20:18

Schmiedmann.com, þeir eru nálægt flensborg.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Olíuverk

Postby Tommi Camaro » Tue 28. Jul 2009 21:54

er með 320d og 520 d í rifi 2000 og 2002 , hafðu samband ef þú vilt fara í notað
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE
User avatar
Tommi Camaro
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3377
Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08

Re: Olíuverk

Postby slyddan » Sat 15. Aug 2009 16:26

ef þig vantar olíuverk svo geturðu sent mér línu. info@dieselpump.nu
User avatar
slyddan
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 1
Joined: Sat 15. Aug 2009 16:23

Re: Olíuverk

Postby Rednex » Wed 19. Aug 2009 20:50

Svona smá aulaspurning...

Er olíuverk í svona nýlegum evrópskum bílum ? Var ekki common-railkerfi komið í allt þá, árgerð 2000 ?
E30 325 MTech II '88

If it works... don´t fix it ;)
Rednex
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 52
Joined: Tue 10. May 2005 23:03
Location: Hafnfirðingur !

Re: Olíuverk

Postby ValliFudd » Wed 19. Aug 2009 22:46

Listasafn Reykjaness á þetta olíuverk

Image

:alien:

Nú heyrir maður talað um að taka upp olíuverk eða eitthvað í þá áttina reglulega með díselbíla.. Nú er komið að noob spurningu dauðans.. Hvað er olíuverk? :oops:
Þar sem ég er ekki með enska orðið gengur illa að googla það eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Olíuverk

Postby 300+ » Wed 19. Aug 2009 23:21

Olíuverkið í dieselvélum sér um að fæða vélina eldsneyti og að allir strokkar fái jafn mikið eldsneyti við sama snúningshraða. Ef við berum þetta saman við bensínbílana mætti segja að olíuverkið í diesel gegni sama hlutverki og eldsneytisdæla og innspýtingartölva, en í diesel er það "oftast" olíuverkið sem stýrir opnun spíssana með því að stýra magni og þrýsting í spíssalögnum sem er umfram opnunarþrýsting spíssana. Þegar olíuverk verða gömul og vanstillt fara þau að dæla mis-miklu magni til strokka við sama sn.hraða. Hér er ég ekki að tala um common-rail, það er allt önnur ella og tölvustýrt en gömlu olíuverkin eru það ekki.
300+
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 339
Joined: Tue 01. Apr 2008 14:00

Re: Olíuverk

Postby ValliFudd » Thu 20. Aug 2009 09:01

ok, svo þegar menn eru að pína meira útúr díselvélum, er boost aukið og fiktað í olíuverki upp á að fá meiri dísel inn á mótor á móti?
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Olíuverk

Postby gstuning » Thu 20. Aug 2009 09:12

Já.

Díesel virka þannig að þær eru ekki með throttle body í þeirri merkingu heldur er allt galopið öllum stundum, snúning vélarinnar er bara stýrt með magningu af eldsneyti. Þannig að

Meira díesel = meira power , þangað til að max poweri fyrir það gefna magn af súrefni er náð. Oftast rétt fyrir svartann reyk.
Enn það fer eftir aðstæðum og tímasetningu á díeselinu.

Þetta er stundum stillanlegt með gjöfinni einni á díesel dælunni. Einnig er hægt að auka þrýstinginn og vinnst þá bæði betri eyðsla sem og meira mögulegt power.

Svo gengur þetta bara auðvitað það sama með turbo´s, meira loft og meira díesel er meira power.
Enda ekki af ástæðuleysi að nýju Bosch díesel kerfin hjá BMW runna á 2500bar þrýsting,
já ekki PSI heldur BAR þrýsting :shock: . Þetta gerir það að völdum að það kemur bara gufa af díesel beint ofan í stimpilrýmið nokkrum sinnum í gegnum hvern gang. Fyrsta innspýttingin er til að deyfa díesel bank hljóðið, hin fyrir afl og svo síðasta til að kreysta þetta síðasta út seint í sprengislaginu.
Enda eru tölurnar á nýju 2.0lítra díesel hjá bmw alveg magnaðar.

Sumir polo gaurarnir eru að runna trukka túrbínur og 3bör boost 8)
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests