Þýski bílaframleiðandinn BMW hagnaðist um 121 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi, sem er langt umfram það sem búist hafði verið við. Almennt höfðu sérfræðingar búist við aðsjá tap upp á um 25 milljónir evra á tímabilinu. Til samanburðar þá er þetta 76% minna en 507 milljóna evra hagnaður framleiðandans á sama tíma í fyrra.
BMW tapaði um 152 milljónum evra á fyrsta fjórðungi þessa árs.
Fram kemur að tekist hafi að mæta minnkandi sölu með því að lækka kostnað á móti.
Bílaframleiðandinn er í viðræðum við franska bílaframleiðandann PSA, sem framleiðir m.a. Citroen og Peugeot.




